ÍVAR
KLAUSEN

Ívar Klausen

Tónlist, samstarf og sköpun

Ég heiti Ívar Klausen og er gítarleikari, tónlistarmaður, lagahöfundur og upptökustjóri.

Ég hóf nám við FÍH árið 2019 og útskrifaðist árið 2023 með áherslu á rytmískan gítarleik. Námið lagði sterkan grunn að þeirri fjölbreyttu reynslu sem ég hef öðlast í tónlist, bæði á sviði og í hljóðveri.

Undanfarin ár hef ég starfað sem session-gítarleikari með ýmsum listamönnum, hljómsveitum og tónlistarverkefnum. Þar má nefna mitt eigið sólóverkefni, Ívar Klausen, auk Dópamín, hljómsveitar Kára Egilssonar, Elín Hall, Frikka Dór,Múr, Kristó, Bear the ant og fjölmargra annarra verkefna. Ég hef einnig komið fram við fjölbreyttar aðstæður, meðal annars á tónleikum, böllum og við flutning á tónlist annarra listamanna.

Með hljómsveitinni Dópamín gaf ég út plötu sem ég samdi, pródúseraði og tók upp. Ég starfaði með hljómsveitinni Múr frá 2018 til 2026.

Ég rek eigið hljóðver þar sem ég vinn að minni eigin tónlist ásamt því að taka upp, útsetja og þróa tónlist fyrir aðra. Mér finnst sérstaklega gefandi að vinna með listfólki að því að finna rétta hljóminn, móta hugmyndir og koma verkefnum frá fyrstu skissu yfir í fullunna útgáfu.

Ég nálgast hvert verkefni af metnaði, einbeitingu og fagmennsku. Ég hef skýra sýn á hvert ég stefni og markmið mitt er að byggja upp langvarandi starfsferil í tónlist. Ég er vinnusamur, lausnamiðaður og legg áherslu á að klára þau verkefni sem ég tek að mér af vandvirkni og heilindum.

Hlusta núna

Finndu tónlist Ívars Klausen á þinni uppáhaldsveitu.

Ívar Klausen

Hægt er að bóka Ívar Klausen fyrir tónleika, einkaviðburði, fyrirtækjaviðburði, hátíðir, session-vinnu og önnur tónlistarverkefni.

Hvítir bolir í stærðum S, M, L og XL kosta 6.000 kr. Vínylplatan kostar 6.000 kr. Sending innan Íslands kostar 1.000 kr. Einnig er hægt að sækja eða fá afhent eftir samkomulagi.

Almennar fyrirspurnir: ivar@klausen.is
Bókanir: booking@klausen.is